Það er nú alveg merkilegt með mig að þegar ég fæ æði fyrir einhverju þá mega vinkonurnar vara sig því ég tala stanslaust og um ekkert nema það tiltekna atriði. Einu sinni var það fyrirlestur um óhollustu ljósabekkjanotkunar svo var það líkamsrækt, hjúkrun á gömlu fólki, fyrirburum og ungbörnum, skólinn en nú eru það blessuðu hundarnir. Mér finnst þeir æðislegir. Og fyrst ég er byrjuð að tala um þá, þá ætla ég að segja ykkur svolítið skemmtilega hundasögu, nei djók bara um mína elskulegu hunda.
Máni kom á heimilið í fyrradag. Hann er yndislegur. Vekur mig um miðjar nætur og sonna heheheeh góð getnaðarvörn, ekki það skemmtilegasta sem ég lendi íL. En greyið var svo slappur í allan gærdag, svaf allan daginn og át ekki neitt né drakk. Ef ég vakti hann þá gekk hann nokkur skref og datt svo niður aftur steinsofandi. Mér leyst nú ekkert á blikuna og hringdi í Ástu og spurði hvort þetta væri eðlilegt, ónei það fannst henni ekki. Ég er búin að handmata hann með sprautu, mjólk og sykurblöndu upphitaða. OMG hvað hann hresstist við þetta. Nú er hann bara flottur kall, leikur við Emblu og gengur hér um hús. En nennir ekki enn að borða, en móðursjúka hundamamman hringdi náttla á dýralækninn og hann sagði að þetta væri í lagi á meðan ég kem vökva ofan í hann.
Embla var nú ekki alveg að gúddera þetta í fyrstu, þurfti að kljást við tilfinningar á borð við afbrýðissemi, óöryggi, gleði, fýlu og flr. En hún er nú búin að jafna sig á þessu öllu saman og finnst alveg æðislegt að leika við litla snúð. Svo er ég náttla búin að vera með 2-3 hundapíur hérna heima á meðan ég er í skólanum heheeheheheh dugar ekkert minna fyrir hundana mína! Gummi bró og Thelma og Jóa sjúkkur eru náttla búin að redda mér feitt sko. Ég hugsa nebbla aldrei fram í tímann og var ekki búin að fatta að mar skilur náttla ekki svona lítinn kall eftir einan, og hvað þá með einni 10 mánaða skessu. Krakkar mínir, ef ykkur vantar einhverntíman greiða, þá eru þeir hjá mér!!!!!!
Nú er fjörið að byrja í skólanum, fullt af verkefnum á næsta leyti og nú þarf maður að byrja að vinna það. Þannig að það er nú bara tóm hamingja heheheeh.
Thelma var búin að fá inn í gæsluna en Gunna góðhjartaða bað þær um að láta einhvern sem væri í brýnustu neyð fá plássið þar sem ég er með svo góða stundatöflu og er alltaf komin heim á undan stelpunum. En ég er í forgangi eftir áramót ef ég þarf á því að halda þá.
Ég get nú ekki sagt annað nema rigningin dragi allann kraft úr manni. Ég er alveg búin að vera að drepast úr leti alla vikuna og sé rúmið mitt alveg í hyllingum allan daginn. Það lá við að ég biði Jóu og Elínu að leggja sig með mér í gær þegar þær voru í kaffi heheheeh við gátum varla setið uppréttar á stólunum fyrir þreytuJ. Ég meina, mar er náttla vakinn um miðjar nætur!!!! Ég var nú samt svo dugleg áðan að ég skellti mér í göngutúr með Embluna þrátt fyrir rigninguna og vá hvað ég var búin að gleyma hvað það er yndislegt að fara í regngallann og vera í ferska loftinu rennandi blautur. Er nú samt ekki viss um að Emblu hafi fundist þetta eins æðislegt og mér J vill helst bara vera inni í svona veðri.
Herru, ég þarf að vera heima um helgina með hvolpinn þannig að það verður bara opið hús í kaffi til mín, samt ekki mjög mikið fyrir hádegi, því helgin verður notuð til að sofa letina úr mér.
Góða helgi allir.